Gengisvísitalan er nú 150,3 stig og hefur krónan því veikst um 1,5% í morgun frá opinberu gengi Seðlabankans á föstudag. Síðast var gengisvísitalan yfir 150 stigum þann 4. apríl s.l.

Þá hefur krónan veikst um 2,9% á einni viku.

Opinbert gengi Seðlabankans var nú kl. 11 í morgun 150,5 stig en á föstudag 148,1 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar síðasta mánuð samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans.

Samkvæmt vef Landsbankans stendur evran nú í 117,8 krónum, Bandaríkjadalur í 74,4 krónum og Sterlingspund í 147,2 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 74,6 krónum og japanskt jen í 0,74 krónum