Gengisvísitalan stendur nú í 154,7 stigum og hefur hækkað um 2% í morgun. Opinber skráning var í morgun 154,7 stig samkvæmt vef Seðlabanka Íslands.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar í mars samkvæmt gengi Seðlabankans.

Þegar þetta er skrifað, kl. 11:40 stendur Evran í 120,8 krónum, dollarinn 76,73 krónum og sterlingspundið í 153,3 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 76,9 krónum og japanskt jen í 0,78 krónum.