Gengisvísitalan stendur nú í 160,7 stigum og hefur hækkað um 3,26% í morgun. Opinbert lokagildi hennar í gær var 157,6 stig.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar frá áramótum. Þó skal tekið fram að gengi dagsins í dag er ekki lokagengi.

Þegar þetta er skrifað, kl. 12:45 stendur Evran í 124,55 krónum, dollarinn 79,14 krónum og sterlingspundið í 158,22 krónum. Þá stendur svissneskur franki í 79,68 krónum og japanskt jen í 0,8 krónum.