Gengisvísitalan er nú 148,9 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentís og stendur krónan því styrkst um 0,9% frá opinberri skráningu krónunnar í gær og 4,4% frá upphafi vikunnar sé miðað við opinbert gengi Seðlabankans.

Opinbert gengi Seðlabankans var kl. 11 í morgun 150,4 stig en var 150,3 stig í gær. Gengisvísitalan hefur ekki verið undir 150 stigum frá 14. mars síðastliðnum.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun íslensku krónunnar frá áramótum samkvæmt gengisvísitölu Seðlabankans en lokagildið 148,9 í dag er miðað við upplýsingar frá Markaðsvakt Mentís.

Nú stendur Evran í 116 krónum, Bandaríkjadalur í 73,6 krónum og Sterlingspund í 146,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 73,3 krónum og japanskt jen í 0,72 krónum.