Íslenska líftæknifyrirtækið Genís hf., sem hefur um tveggja áratuga skeið unnið að rannsóknum og þróun á lífvirkum kítínfásykrum til notkunar í fæðubótarefnum, lyfjum og við beinígræðslu, hefur lokið fjármögnun sem felur í sér hlutafjáraukningu að fjárhæð 2,4 milljarðar króna.

Meðal nýrra hluthafa eru fjárfestarnir Andri Sveinsson, Sigþór Sigmarsson, sem tekur sæti í stjórn félagsins, og Sigurgeir Guðlaugsson, forstjóri Genís. Þá bætast TM Tryggingar og alþjóðlega fjárfestingarfélagið Yanu Holdings einnig við hluthafahópinn.

Fjármögnuninni er fyrst og fremst ætlað að styðja við áframhaldandi forklínískar rannsóknir og þróun lyfja ásamt áframhaldandi markaðssókn félagsins á erlendum mörkuðum.

Ráðgjafi Genís við hlutafjáraukninguna var fyrirtækjaráðgjöf Arion banka. KPMG Law veitti Genís lögfræðilega ráðgjöf í ferlinu og var lögmannsstofan LOGOS lögfræðilegur ráðgjafi nýrra fjárfesta.

Róbert Guðfinnsson, stofnandi og stjórnarformaður Genís:

„Að fá inn jafn reynslumikla hluthafa og raun ber vitni eru einstaklega ánægjuleg tímamót í sögu félagsins og styrkir þá trú okkar sem höfum unnið að uppbyggingu Genís frá árinu 2005 að við séum á réttri leið og að gríðarlega spennandi tækifæri séu framundan. Starfsfólk félagsins hefur sýnt mikla þrautseigju og trú á verkefninu síðustu ár og er fjármögnun þessi ekki síst viðurkenning á þeirra kraftmikla starfi.”

Markmið Genís er að mæta óuppfylltri þörf með því að veita árangursríkar lausnir við ýmsum bólgusjúkdómum. Þá hefur félagið um árabil unnið að þróun beinígræðslulausna sem byggjast á endurnýjunar-, beinvirkni-, og bakteríudrepandi eiginleikum kítínafleiða. Árið 2016 kom á markað fyrsta vara Genís - fæðubótarefnið Benecta - sem hefur frá upphafi verið eitt af mest seldu fæðubótarefnum landsins auk þess að vera selt á evrópskum markaði.

Í upphafi árs tók Sigurgeir Guðlaugsson við sem forstjóri félagsins og hefur hann víðtæka reynslu úr lyfjageiranum. Hann hefur setið í stjórnum og sinnt margvíslegum stjórnunarstörfum m.a. fyrir Actavis Group, Novator, Enzymatica AB, Zymetech, Coripharma Holding, 3Z og Straum fjárfestingarbanka.

Þá hefur Guðmundur Kristján Jónsson bæst við framkvæmdastjórn félagsins sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála en hann hefur á undanförnum árum fengist við fjölbreytt verkefni á sviði nýsköpunar- og umhverfismála bæði hérlendis og í Bandaríkjunum sem sjálfstæður ráðgjafi og stjórnandi.

Sigurgeir Guðlaugsson, forstjóri:

„Það eru mikil forréttindi að hafa fengið að taka við stjórnartaumunum hjá Genís á þessum tímapunkti. Frá upphafi hefur verið lögð rík áhersla á öflugt rannsóknar- og þróunarstarf og vísindalegur grunnur félagsins er því afar sterkur. Þá hefur einnig verið fjárfest mikið í framleiðsluferlum og fullkominni framleiðsluaðstöðu á Siglufirði. Í allri þessari þekkingu felast mikil verðmæti og gerir þessi fjármögnun okkur kleift að stíga næstu skref í lyfjaþróun með tilheyrandi fjölgun starfsfólks og auknum umsvifum á ýmsum sviðum.”

© Aðsend mynd (AÐSEND)