Tæknifyrirtækið Genki Instruments hefur ráðið Þorleif Gunnar Gíslason sem nýjan hönnunarstjóra frá Aton.JL. Þorleifur mun leiða nýja þverfaglega hönnunarstofu undir nafninu Genki Studios ásamt Jóni Helga Hólmgeirssyni hönnunarstjóra Genki Instruments. Þorleifur hefur verið viðloðinn Genki Instruments síðastliðin þrjú ár sem ráðgjafi og hönnuður í hlutastarfi.

Þorleifur útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands árið 2012, en meðfram námi hóf hann störf hjá Jónsson & Le’macks, sem nú heitir Aton.JL. Meðal fyrirtækja sem Þorleifur hefur unnið fyrir eru Adobe, 66°NORÐUR, Landsvirkjun, Þjóðminjasafnið, Norðursalt, RIFF og Gamma.

Þorleifur er margverðlaunaður fyrir verk sín, meðal annars hefur hann hlotið fjölda FÍT verðlauna, ÍMARK lúðra, Hönnunarverðlaun Íslands 2019, tvenn Red Dot verðlaun, One Show verðlaun og tilnefningar til D&AD, ADC*E og Cannes verðlauna. Þá hafa verk Þorleifs birst í fjölda fagtímarita og hönnunarbóka um allan heim og einnig á samsýningum bæði hér heima og erlendis.

Jafnframt hefur Þorleifur gegnt stjórnarsetu í Félagi íslenskra teiknara um árabil og situr einnig í ritstjórn HA tímaritsins, sem er fagtímarit um hönnun og arkitektúr sem gefið er út af Hönnunarmiðstöð Íslands. Undanfarin þrjú ár hefur Þorleifur einnig sinnt stundakennslu hluta úr ári í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands.

Ólafur Bjarki Bogason , framkvæmdastjóri Genki Instruments, segir Þorleif hafa einstakt auga enda komið að fjölmörgum verðlaunaverkum í gegnum árin.

„Ráðning Þorleifs er liður í að styrkja Genki ennfremur sem hönnunardrifið fyrirtæki og fylgja eftir þeim góða árangri sem við höfum náð á undanförnum árum. Nú, þegar Genki Instruments voru veitt Hönnunarverðlaun Íslands 2019, fundum við að þetta væri rétti tímapunkturinn til að opna okkur enn frekar útávið með hönnunarstofu sem tekur að sér fjölbreytt verkefni samhliða þverfaglegri vöruþróun Genki,“ segir Ólafur Bjarki.

„Honum stóðu til boða störf sem listrænn stjórnandi á flottum stofum í New York og Moskvu en valdi frekar að byggja upp Genki Studios með okkur. Fyrsta vara Genki Studios er nú þegar komin í verslanir, en það er dagatal fyrir árið 2020 og fæst í Epal, Akkúrat, Heima Market, Hönnunarsafni Íslands, NLSN, Geysi Heima og á síðunni genkistudios.com.

Saman mynda þeir Jón Helgi frábært þverfaglegt teymi sem getur tekið að sér fjölbreytta flóru verkefna, hvort sem það er vöruhönnun, umbúðahönnun, mörkun fyrirtækja, hönnun ferla eða innanhússhönnun, svo dæmi séu tekin. Við bjóðum hann velkominn til starfa.”