Georg Brynjarsson hefur verið ráðinn hagfræðingur BHM.  Um er að ræða nýja stöðu og er hún til marks um aukna áherslu bandalagsins á sjálfstæði í greiningu efnahagsmála. Georg verður verkefnastjóri kjara- og réttindanefndar BHM auk þess að fylgjast með framvindu efnahagsmála og sinna fræðslu, ráðgjöf og almennri upplýsingamiðlun um hagfræðilegt efni.

Georg er með M.Sc. meistaragráðu í hagfræði frá Syddansk Universitet í Danmörku og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst. Þá stundaði hann nám í viðskiptafræði og hagfræði við Kaliforníuháskóla og Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn.  Georg starfaði áður sem sérfræðingur á sviði efnahagsmála hjá Utanríkisráðuneytinu í tengslum við aðildarviðræður Íslands við ESB auk þess að starfa um stund hjá hagdeild EFTA í Lúxemborg.

Bandalag háskólamanna var upphaflega stofnað 23. október 1958 og er nú heildarsamtök stéttarfélaga háskólamanna.