„Wall Street datt í það og þjáist af þynnku,“ sagði George W. Bush  nýlega í Houston. Þessi orð lét forseti Bandaríkjanna falla þegar hann hélt að ekki væri verið að taka upp, en myndband  af atvikinu hefur nú lekið inn á Youtube og má sjá hér .

„Það er engin spurning, Wall Street datt í það. Þetta er ástæðan fyrir að ég bað ykkur um að slökkva á myndavélunum,“ segir Bush í myndbandinu. „Spurningin er, hversu lengi verður Wall Street að jafna sig?“

Fjölmiðlum var ekki leyft að fylgjast með veislunni sem Bush lét orðin falla í, en hún var haldin til styrktar Repúblikana í Texas. Ummælin náðust hins vegar á litla myndatökuvél.

Þetta kemur fram í frétt Telegraph.