Öryggistæknifyrirtækið Nortek ehf. frá Akureyri hefur gert samning við tyrknesku skipasmíðastöðina Cemre Shipyard um að setja upp öryggis- og tæknibúnað ásamt fullbúnu gagnaveri í fjögur íslensk skip sem skipasmíðastöðin er að smíða fyrir Samherja Ísland, Útgerðarfélag Akureyrar og Fisk Seafood á Sauðárkróki. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Um er að ræða stærsta samning sem Nortek hefur gert frá upphafi og nemur verðmæti hans 350 milljónum króna. Samningurinn mun skapa fjölda hátæknistarfa en fyrirtækið mun þurfa að fjölga tæknistörfum í kjölfarið.

„Með samningnum tryggja íslensku útgerðarfyrirtækin sér búnað í hæsta gæðaflokki og þjónustu við hann hér heima en Nortek bæði selur og þjónustar búnaðinn,“ segir Guðrún Ýrr Tómasdóttir, stjórnarformaður og markaðsstjóri Nortek.

Verkefnið er að auka öryggi áhafnar, einfalda og bæta rekstraröryggi skips, samþætta og fækka skjám í brú, losa brúna við kælibúnað eins og tölvuviftur og straumgjafaviftur, auka stöðugleika í orkunotkun, öruggara varaafl (UPS), gera gagnaflutning hraðvirkari og traustari, einfalda framsetningu á upplýsingum og einfalda viðhald alls búnaðar um borð.