Veitingafyrirtækið Lagardère Travel Retail á Íslandi, sem á og rekur veitinga- og kaffistaði í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, og fyrirtækið Central Pay, sem býður upp á einfaldar leiðir til þess að taka við greiðslum frá AliPay og WeChat Pay, hafa komist að samkomulagi.

Snýst samkomulagið um notkun á greiðslu- og markaðslausnunum Alipay og WeChat Pay á veitinga- og kaffistöðum Lagardère Travel Retail að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Þannig kemur Lagardère Travel Retail á Íslandi til móts við ört stækkandi hóp kínverskra ferðamanna sem koma til landsins með viðkomu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um í ítarlegu viðtali við yfirmann hjá Alipay, þá eru slíkar snjallsímagreiðslur að hasla sér völl víða um heim en fullyrt er að notendur versli meira ef lausnin er í boði .

Greitt í gegnum einn vinsælasta samfélagsmiðil heims

WeChat Pay eru farsímagreiðslur sem eru innbyggðar í WeChat samfélagsmiðilinn, sem er einn vinsælasti samfélagsmiðill í heimi með yfir milljarð notenda. Alipay sem er leiðandi á sínu sviði í heiminum er farsímagreiðsluþjónusta, sem er notuð af yfir 700 milljónum manna í Kína.

Greiðslur í gegnum þessa miðla nema um 94% allra farsímagreiðslna í Kína. Kínverskum ferðamönnum til Íslands hefur fjölgað jafnt og þétt, en á síðasta ári voru þeir um 90 þúsund og í ár er áætlað þeir verði hátt í 110 þúsund. Þrátt fyrir fækkun ferðamanna til landsins almennt, fjölgaði kínverskum ferðamönnum um 16,4% á fyrstu tveimur mánuðum ársins, sem er aukning frá sama tímabili í fyrra.

Nota síður reiðufé og greiðslukort

„Okkur heimsækja sífellt fleiri ferðamenn frá Kína, þar sem reiðufé og greiðslukort eru ekki aðalgreiðslumátinn heldur snertilausar greiðslur eins og með farsíma,“ sagði Sigurður Skagfjörð Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Lagardère Travel Retail á Íslandi.

„Með WeChat og Alipay geta kínverskir notendur sinnt sínum helstu daglegu þörfum eins og að greiða reikninga eða greiða fyrir ýmsar vörur og þjónustu. Það er því mjög mikilvægt fyrir okkur að geta boðið upp á viðskiptahætti sem þeir þekkja, til að geta tryggt fljót og hnökralaus viðskipti. Flugvellir eru oft fyrsti viðkomustaður ferðamanna um landið okkar og það er mikilvægt að geta sýnt þeim að við getum komið til móts við þarfir þeirra, sama hvaðan þeir koma.”

AliPay og WeChat Pay vinsælustu lausnirnar

Stefán Þór Stefánsson, framkvæmdastjóri Central Pay, segir félagið bjóða upp á einfaldar og sérsniðnar heildarlausnir fyrir íslensk fyrirtæki til að tengjast kínverskum markaði og ferðamönnum.

„AliPay og WeChat Pay eru vinsælustu greiðsluþjónusturnar á meðal Kínverja og því skapar það traust í viðskiptum ef þeir hafa aðgang að því greiðsluferli sem þeir þekkja,” sagði Stefán Þór.

„Greiðsluþjónusturnar veita Lagardère Travel Retail á Íslandi tækifæri til að efla þjónustu og sölu til kínverskra ferðamanna, bæði með þekktum greiðsluleiðum og sérsniðinni markaðssetningu.”