Í dag var lagt fram frumvarp að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir árið 2015 og fimm ára áætlun frá árinu 2015 til 2019.
Í frumvarpinu kemur fram að rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar árið 2015 sé áætluð jákvæð um 8,8 milljarða króna. Í áætlun ársins 2014 var gert ráð fyrir að niðurstaðan yrði jákvæð um 8,1 milljarð en samkvæmt útkomuspá ársins sé hins vegar gert ráð fyrir 14,4 milljarða króna afgangi.
Fram kemur að meginástæðan fyrir væntum afgangi á yfirstandandi ári sé hækkandi álverð og gengi og minni verðbólga en þjóðhagsspá í fyrra gerði ráð fyrir. Áætlað er að rekstrarniðurstaðan fyrir fjármagnsliði verði jákvæð og nemi um 9,1 milljarði en í útkomuspá ársins er gert ráð fyrir 18,9 milljarða afgangi sem sýni að grunnrekstur samstæðunnar og þá einkum Orkuveitu Reykjavíkur sé sterkur.
Samkvæmt fimm ára áætlun samstæðu Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir vaxandi afgangi á komandi árum. Þannig er gert ráð fyrir 11,8 milljarða afgangi árið 2016, 12,5 milljarða afgangi árið 2017, 13,1 milljarðs afgangi árið 2018 og 14 milljarða afgangi árið 2019.
Er þá einnig ráðgert að rekstrarniðurstaðan fari batnandi hjá A-hluta og verði 437 milljónir króna á þessu ári, 2,1 milljarður árið 2016, 1,8 milljarðar árið 2017, 1,3 milljarðar árið 2018 og 1,2 milljarðar árið 2019.