Afgangur af vöruskiptum verður hagstæður um tæpa fjóra milljarða króna í febrúar, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Verði þetta raunin hefur afgangur af vöruskiptum ekki verið minni síðan í febrúar árið 2008. Þá nam hallinn reyndar rúmum 12 milljörðum króna.

Gert er ráð fyrir því að verðmæti útflutnings hafi verið 41,3 milljarðar króna og innflutnings 37,3 milljarðar.