„Salan á starfsemi okkar í Frakklandi og Þýskalandi er mikilvægt skref í því að skerpa á stefnu Icelandic Group og gerir okkur jafnframt kleift að lækka skuldir félagsins og skjóta styrkari stoðum undir annan rekstur þess," er haft eftir Brynjólfi Bjarnasyni forstjóra Icelandic Group.

Icelandic Group hefur gengið frá sölu á starfsemi fyrirtækisins í Frakklandi og Þýskalandi til fjárfestahóps undir forystu sjávarútvegsfyrirtækisins Pacific Andes frá Hong Kong. Í fréttatilkynningu segir að með sölunni sé stigið mikilvægt skref við endurskipulagningu Icelandic Group; áherslur verði skýrari og skuldir lækki.

Keyptu fyrirtækin 2005 og 2006

Icelandic Group eignaðist þýska fyrirtækið Pickenpack Hussman & Hahn árið 2005. Það sérhæfir sig í framleiðslu og vinnslu sjávarafurða fyrir neytendamarkað í Þýskalandi og öðrum Evrópulöndum. Árið 2006 eignaðist Icelandic Group verksmiðju í Wimille í Frakklandi (Gelmer), þar sem unnar hafa verið sjávarafurðir undir merkinu Icelandic Boulogne Sur Mer. Söluskrifstofa Icelandic France í París fylgir einnig með í kaupunum. Kaupverð er trúnaðarmál samkvæmt samkomulagi milli aðila.

Í tilkynningu segir jafnframt:

Í mars síðastliðnum réð Icelandic Group Merrill Lynch International (“BofA Merrill Lynch”), dótturfyrirtæki Bank of America Corporation, sem fjárhagslegan ráðgjafa samstæðunnar við mat á stefnu félagsins og þeim kostum sem félagið hefði í þeim efnum. Meðal þeirra kosta voru sala eigna úr samstæðunni og möguleikar á sölu á hlut í félaginu. Salan á starfseminni í Frakklandi og Þýskalandi nú er hluti af þessu ferli.

Viðskiptin eru háð samþykki samkeppnisyfirvalda í viðkomandi löndum.