Greiningardeild Landsbanka Íslands hefur endurskoðað verðbólguspá sína fyrir janúar og gerir nú ráð fyrir 0,2% hækkun vísitölu neysluverðs, sem er hækkun frá fyrri spá um óbreytta vísitölu.

Gangi spáin eftir lækkar tólf mánaða breyting vísitölunnar úr 7% í 6,8% á milli mánaða.