Skarphéðinn Guðmundsson
Skarphéðinn Guðmundsson

„Ég geri fastlega ráð fyrir að ég komi til með að sækja um. Þrátt fyrir viðburðarríkt ár þá er þetta spennandi starf,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóri RÚV. Starf hans og annarra framkvæmdastjóra á RÚV var auglýst laust til umsóknar um helgina. Skarphéðinn var ráðinn í starfið í byrjun nóvember 2012. „Ég er bara rétt að ná að koma því til framkvæmda sem ég hafði hugsað mér,“ segir Skarphéðinn.

Hann bætir því við að hann eigi tiltölulega nýfrágengna umsókn sem auðvelt sé að senda inn aftur. „Ætti að vera fljótafgreitt að uppfæra hana og bæta við þeirri reynslu sem ég hef öðlast síðan þá,“ svarar hann hress í bragði. „Verði ég kallaður í viðtal þá kem ég líklegast til með að segja það sama og ég sagði síðast. Það virkaði þá,“ segir hann laufléttur.

VB.is hefur ekki náð tali af Óðni Jónssyni fréttastjóra en staða hans var einnig auglýst.