Næsta sumar mun flugfélagið Germania hefja flug til Íslands frá Bremen og Friedrichshafen. Þetta kemur fram í frétt Túristi.is.

Germania er fjórða þýska flugfélagið sem býður upp á flug til og frá Íslandi. Hingað til hefur verið hægt að fljúga allt árið um kring til Berlínar, Frankfurt og Munchen.

Á sumrin bætast svo við Dusseldorf, Hamborg, Köln og Stuttgart. Úrval áfangastaða í Þýskalandi er því íburðarmikið fyrir.

Fyrsta ferð Germania til Íslands verður 11. júní frá Bremen. Þangað verður svo flogið fram til 21. ágúst, en til og frá Friedrichshafen til 10. september.

Samkvæmt bókunarkerfi á vefsíðu Germania eru ódýrustu miðanarnir til Keflavíkur til Friedrichshafen að kosta kringum 99 evrur eða fjórtán þúsund krónur.