Gable Insurance AG sem selt hefur leigutryggingar hér á landi um nokkurt skeið í gegnum vátryggingamiðlun hefur verið gert að stöðva sölu nýtrygginga og endurnýjun eldri samninga.

Þetta kemur fram í frétt Fjármálaeftirlitsins og vísað í ákvörðun þess efnis frá fjármálaeftirlitinu í Liechtenstein.

„Aðilum með vátryggingar hjá Gable Insurance AG og vátryggðum er bent á að hafa samband við viðeigandi vátryggingamiðlun hafi þeir spurningar,“ segir í frétt eftirlitsins.