Vöruskipti voru jákvæð um 9,4 milljarða króna í síðasta mánuði, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Miðað við tölurnar nam verðmæti útflutnings 50,2 milljörðum króna á óbreyttu gengi en verðmæti innflutnings 40,8 milljörðum króna.

Gangi það eftir er þetta mesti afgangur af vöruskiptum í áratug.

Þá mun afgangur af vöruskiptum á fyrstu fjórum mánuðum ársins meira en 37 milljörðum króna. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010  nam afgangur af vöruskiptum rúmum 38 milljörðum króna.