Gestum í Bláa Lóninu hefur fækkað fyrstu sex mánuði ársins, borið saman við síðasta ár. Heildargestafjöldi Bláa lónsins fyrri hluta þessa árs er 169.000 gestir, en árið 2007 var fjöldi gesta fyrstu sex mánuði ársins 174.000. Það er tæplega 3% fækkun gesta milli ára. RÚV greindi frá þessu.