Frétta- og upplýsingavefurinn Gestur.is, er nú kominn í gagnið. Viðskiptablaðið hefur áður fjallað um opnun vefsins en formleg opnun hans var í dag. Vefurinn mun safna saman upplýsingum um ferðaþjónustugeirann auk þess að að skrifa fréttir upp úr þeim. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu á síðunni.

Ritstjóri vefsins er Sara McMahon, sem hefur löngum starfað sem blaðamaður, meðal annars hjá fjölmiðlafyrirtækinu 365. Vefurinn verður bæði á íslensku og ensku til að auka notagildi hans, segir í tilkynningunni. Áður hafði verið greint frá að Magnús Orri Schram, væri einn af aðstandendum vefsins.