Stjórn Veitna ohf. hefur ráðið Gest Pétursson forstjóra Elkem Ísland sem framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur. Verðmæti eigna Veitna er skráð um 100 milljarðar króna og veltan árið 2018 var 23 milljarðar króna. Starfsmenn eru um tvö hundruð talsins.

Það skýrist á næstunni hvenær Gestur hefur störf, en Gestur var framkvæmdastjóri öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismála hjá Elkem Ísland frá því í árslok 2010 og forstjóri fyrirtækisins síðustu liðlega fimm árin.

Í störfum sínum fyrir Elkem Ísland hefur hann unnið að innleiðingu og samþættingu nýsköpunar í fyrirtækjamenningu félagsins til að takast á við þau tækifæri sem orkuskiptin í heiminum fela í sér, vöruþróun gagnvart viðskiptavinum og umbótum á kostnaðargrunni verksmiðjunnar á Grundartanga.

Samhliða störfum fyrir Elkem Ísland hefur Gestur setið í stjórnum félaga á Íslandi og á alþjóðlegum vettvangi, meðal annars í stjórn samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir og í stjórn Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgð.

Gestur lauk meistaragráðu í iðnaðar- og rekstrarverkfræði með áherslu á orkumál og áhættustýringu frá Oklahoma State University í Bandaríkjunum árið 1998.

Horfir til orkusparnaðar og orkuskipta

„Það er mikil tilhlökkun að tilheyra öflugu teymi hjá traustu fyrirtæki með skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn um þá mikilvægu lífsgæðaþjónustu sem fyrirtækið veitir einstaklingum, fjölskyldum, fyrirtækjum og stofnunum.“ segir Gestur.

„Orkuskiptin framundan, orkusparnaður, orkuframboð hverju sinni, hreinleiki vatnsins, gæði fráveitunnar og alls kyns áskoranir í umhverfismálum eru og verða daglegt viðfangsefni þess öfluga teymis sem starfsfólk Veitna myndar. Á sama tíma horfi ég með þakklæti til þeirrar reynslu sem starfið hjá Elkem hefur veitt mér og með söknuði til alls þess frábæra starfsfólks sem mér hefur hlotnast sá heiður að vinna með á þeim vettvangi.“

Dreifir rafmagni til helmings landsmanna

Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og annast uppbyggingu og rekstur veitukerfa á höfuðborgarsvæðinu auk þéttbýlis og dreifbýlis á Suður- og Vesturlandi. Veitur dreifa rafmagni til liðlega helmings landsmanna í sex sveitarfélögum við Faxaflóa.

Fráveitukerfin þjóna öllu höfuðborgarsvæðinu auk þess sem Veitur reka hreinsistöðvar víðar um landið. Eitt lykilhlutverka Veitna er vatnsvernd fyrir vatnsveiturekstur fyrirtækisins á sunnan- og vestanverðu landinu en umfangsmestar eru hitaveitur Veitna, sem þjóna um þremur af fjórum Íslendingum.