Gestur G. Gestsson, framkvæmdastjóri Margmiðlunar, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Og Vodafone. Ráðningin er með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda um samruna Margmiðlunar við Og Vodafone. Fyrst í stað mun Gestur sinna verkefnum tengdum samruna Og Vodafone og Margmiðlunar í nánu samráði við Liv Bergþórsdóttur, framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs smásölu.

Liv mun í nóvember taka sér hálfs árs leyfi frá störfum og mun Gestur sinna framkvæmdastjórn sölu- og markaðssviðs smásölu í fjarveru hennar.