Í kjölfar þess að Alþingi samþykkti breytingartillögu við rammaáætlun, sem felur í sér að hvorki Holtavirkjun né Urriðafossvirkjun eru settar í nýtingarflokk, er ljóst að Landsvirkjun mun ekki geta útvegað nægilega orku til að anna tveimur stórum stóriðjuverkefnum í Helguvík og á Grundartanga. Kemur þetta fram í Morgunblaðinu í dag.

Um er að ræða kísilmálmverksmiðju Thorsil á fyrrnefnda staðnum og sólarkísilverksmiðju Silicor Materials á þeim síðarnefnda. Samanlögð orkuþörf fyrirtækjanna, sem óskað hafa eftir raforkusölusamningi við Landsvirkjun, nemur 125 MW.

Fyrrnefnd breytingartillaga gerir Landsvirkjun hins vegar aðeins kleift að ráðast í Hvammsvirkjun í Þjórsá. Sú virkjun mun aðeins geta tryggt 82 MW.