Enn er uppi óvissa um það hvort Sigurði Inga Jóhannssyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sé heimilt að flytja höfuðstöðvar Fiskistofu frá Hafnarfirði til Akureyrar. Ráðuneytið veit ekki hvort áformin standast lög og kannaði það ekki áður en ráðherrann boðaði flutninginn.

Þetta kemur fram í svari ráðherrans við fyrirspurn Birgittu Jónsdóttur um málið. Í svarinu kemur ekki fram hvort endanleg ákvörðun hafi verið tekin um flutninginn, sem ráðherrann sagði í svari við fyrirspurn umboðsmanns Alþingis frá því í desember að væru einungis áform.