Vodafone hefur ákveðið að öll símtöl úr farsímum á Íslandi til Filippseyja verði endurgjaldslaus frá miðnætti 20. nóvember til 10. desember næstkomandi. Sem kunnugt varð þar mikil eyðilegging og fjöldi fólks býr við bág kjör vegna fellibyls sem reið yfir fyrir fáeinum dögum. Erfitt hefur verið að komast í samband við mörg svæði landsins og margir hafa því litlar sem engar upplýsingar um afdrif ættingja og vina.

Vonast Vodafone til að þetta muni auðvelda viðskiptavinum sínum að leita ættingja og vina og halda tengslum við þá á meðan neyðin er mest. Hægt verður að hringja frítt bæði úr farsímum í áskrift og frelsi og skiptir engu hvort hringt er í landlínunúmer eða farsímanúmer. Af tæknilegum ástæðum er hins vegar ekki hægt að bjóða að hringt sé frítt úr heimasíma.

Í tilkynningu frá Vodafone segist fyrirtækið vilja nota tækifærið og minna alla sem vilja leggja hjálparstarfinu lið á hjálparsíma Rauða Krossins, sem eru 904 1500 fyrir þá sem vilja greiða 1.500 kr. í söfnunina, 904 2500 fyrir 2.500 kr. og 904 5500 ef greiða á 5.500 kr. Framlagið rennur óskert í söfnunarsjóð Rauða krossins.