BYKO og Hagvangur hafa skrifað undir samkomulag sem felur í sér að fyrrnefnda félagið innleiðir Siðferðisgáttina fyrir starfsfólk sitt. Innleiðingin felur í sér að starfsmenn geti komið á framfæri kvörtunum, beint til óháðs teymis, ef þeir verða fyrir óæskilegri háttsemi eða finna fyrir vanlíðan í starfi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum.

„Markmið Siðferðisgáttarinnar er að styrkja stoðir góðrar vinnustaðarmenningar og að skapa farveg fyrir alla starfsmenn, óháð stöðu, til þess að koma á framfæri til óháðra aðila ef þeir verða fyrir óæskilegri hegðun og fer málið þar með strax í faglegan farveg,“ er haft eftir Yrsu Guðrúnu Þorvaldsdóttur, ráðgjafa hjá Hagvangi, í tilkynningunni.

„Við trúum því að á bakvið öfluga liðsheild ríki traust og samkennd sem byggir á heiðarlegum samskiptum. Við berum virðingu fyrir hvort öðru óháð kyni, litarhætti, stétt og stöðu. Við samþykkjum einfaldlega ekkert einelti, áreitni né ofbeldi í hvaða mynd sem það birtist. Það þarf kjark og hugrekki þeirra sem verða fyrir óæskilegri framkomu að stíga fram. Það er því mikilvægt að tryggja einfaldan og skýran farveg til að koma slíkum málum frá sér. Leiðin þarf að vera skýr, einföld sem er umlykin trausti og trúnaði,“ er haft eftir Sigurði Brynjari Pálssyni, forstjóra BYKO.

Alls starfa tæplega 500 manns hjá BYKO og geta þeir nú nýtt sér umrædda þjónustu. Umrætt samkomulag tók gildi um miðjan mánuðinn.