Í nýju framvarpi sem birt hefur verið á samráðsgátt stjórnvalda er lagt til að sýslumanni verði heimilt að beita stjórnvaldssektum á gististarfsemi sem ekki hefur fengið tilskylt leyfi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins .

Samkvæmt núgildandi löggjöf ber sýslumanni að senda slík brot áfram til viðkomandi lögreglustjóra. Sýslumaður hefur hins vegar heimild til að beita einstaklinga stjórnvaldssektum vegna brota á skráningarskyldu heimagistingar. Því hefur verið munur á málsmeðferð aðila sem leiðir til þess að búast má við að hærri sekt liggi við því að stunda stunda óskráða heimagistingu en ólöglega rekstrarleyfisskylda starfsemi í atvinnuskyni. Reynslan sýnir að sjaldan eru gefnar út ákærur í slíkum  málum heldur er þeim lokið með lögreglusekt. Markmiðið  er að koma í veg fyrir ólíkar niðurstöður vegna sambærilegra brota, flýta málsmeðferð og draga úr kostnaði sem hlýst af formlegri og kostnaðarsamri ákærumeðferð fyrir dómstólum.

Einnig er lagt til að sýslumaður fái heimild til að beita stjórnvaldssektum ef aðili með skráða heimagistingu skilar ekki inn nýtingaryfirliti í samræmi við ákvæði laganna. Hann hefur til þessa ekki haft nein úrræði til að knýja fram skil á nýtingaryfirliti sem torveldar eftirlitshlutverk hans.

Þá er líka lagt til að skráning heimagistingar verði bundin við bæði þinglýst eignarhald og lögheimili en samkvæmt núgildandi löggjöf er skráningin eingöngu bundin við lögheimili. Með þeirri breytingu er markmiðið að koma í veg fyrir lögheimilisskráningar til málamynda.