Yfirtaka á Getty-myndabankanum hefur verið samþykkt. Það er einkafjárfestingarsjóður Hellman og Friedman sem tekur yfir félagið, sem er eitt hið stærsta sinnar tegundar í heimi, og mun borga 34 Bandaríkjadali á hlut, en það er 55% hærra verð en markaðsverð Getty var daginn áður en tilkynnt var um mögulega yfirtöku.