Geysi Petroleum ehf. hefur sent frá sér tilkyningu um olíufund í Norðursjó. Það er félagið Antrim Energy, sem Geysir á 10% hlut í, sem hefur greint frá olíufundi á ríflega 3.300 metra dýpi. Lindin er á Gauseway svæðinu.

Stærsti hluthafi Geysis Petroleum er Straumborg ehf. (sameinað félag Straumborgar ehf. og Norvest ehf.), sem er í eigu fjölskyldu Jóns Helga Guðmundssonar. Geysir vinnur að sameiningu við Sagex og InOil og er stefnt að skráningu sameinaðs félags, Geysis Petrolium ASA, í kauphöllina í Osló í haust.

Geysir Petroleum hefur leyfi til olíuleitar í sjó í lögsögu Bretlands, Danmerkur og Færeyja. Hola var boruð á breska svæðinu í svokölluðu Causeway verkefni árið 2006. Á Geysir 10% í því verkefni, en aðrir eigendur eru kanadíska fyrirtækið Antrim Energy Inc. sem jafnframt er verktakinn á svæðinu, breska félagið Dana Petroleum Plc og norska fyrirtækið NOR Energy AS þar sem Norvest er einnig stærsti hluthafinn. Hefur olíufundur verið staðfestur á þessu svæði og er ráðgert að vinnsla hefjist 2009.


Í dönsku lögsögunni er Geysir með leyfi á svokölluðu Central Graben svæði. Þar á Geysir 80% hlut á móti 20% hlut danska ríkisins. Þar eru taldar góðar líkur á að olía finnist. Er áætlað að hefja borun rannsóknarholu á því svæði 2008. Ef allt gengur upp ætti vinnsla að geta hafist þar 2013.


Auk réttar til olíuleitar í Norðursjó hefur Geysir Petroleum sýnt áhuga á olíuleit við Ísland og var upphaflega stofnað í þeim tilgangi.