Björgólfur Jóhannsson starfandi forstjóri Samherja segir fyrirtækið hafa unnið fullnaðarsigur í deilum við samstarfsaðila í Namibíu að því er fram kemur í yfirlýsingu á vef félagsins . Jaframt kemur þar fram að skip félagsins Gesir sé nú statt við veiðar við Máritaníu en skipið Saga sé á leið í slipp vegna tímabærs viðhalds og lagfæringa.

„Það er mjög ánægjulegt að mál vegna skipsins Heinaste og skipstjóra þess var leitt til lykta fyrir dómi í Namibíu á miðvikudag. Þetta skapar ný tækifæri í rekstri skipsins og við viljum að þau verði nýtt í Namibíu,“ segir Björgólfur sem leggur áherslu á lausnir fyrir starfsmenn félagsins, þá sérstaklega áhafnarmeðlimi Heineste.

„Eins og áður hefur komið fram munu fyrirtækin sem um ræðir standa við skuldbindingar sínar gagnvart öllum starfsmönnum í samræmi við gildandi lög og reglur.“

Deilurnar snerust meðal annars um heimild félagsins til að selja verksmiðjuskipið Heineste til rússneskrar útgerðar þvert á vilja namibískra samstarfsaðila þeirra. Eins og sagt var frá í fréttum í gær játaði skipstjóri skipsins ólöglegar veiðar á hrygningarslóð í Namibíu og var dæmdur til greiðslu sektar að andvirði 8 milljóna íslenskra króna.

Segir Björgólfur að í deilunum, sem Viðskiptablaðið sagði frá í sumar, hafi verið reynt að nýta sér ásakanir sem fram komu síðar um að félagið hafi nýtt sér spillta stjórnmálamenn í landinu til að fá úthlutaðan kvóta sem ítarlega hefur verið fjallað um í fréttum .

Segir hann félagið hafa stefnt að því um hríð að hætta rekstri í Namibíu, en félagið hyggist nú þó leigja verksmiðjutogarann Heineste til þarlendra aðila.

Eins og sagt var frá í fréttum hafa tvö af þremur skipum sem tengjast félögum Samherja í landinu siglt úr landi síðustu daga . Segir félagið löngu ákveðið að Saga undirgangist viðhald og lagfæringar, en Geysir hafi haldið til veiða í Máritaníu, sem er við norðvesturströnd Afríku, því dótturfélög Samherja í Namibíu hafi ekki fengið úthlutað kvóta fyrir það.

Eina skipið sem er eftir er Heineste, en Björgólfur segir félagið nú leggja ríka áherslu á að finna lausnir sem henti namibískum áhafnarmeðlimum skipsins, það er leitast við að veita eins mörgum þeirra áframhaldandi vinnu og mögulegt er, sem og lausnum sem henti samfélaginu og minnihlutaeigendum eignarhaldsfélags Heineste.

Hér má lesa yfirlýsingu Björgólfs í heild:

Samherji hefur um nokkra hríð unnið að því að draga úr starfsemi sinni í Namibíu með það fyrir augum að hætta rekstri í landinu. Nú er svo komið að samstæðan hefur óverulegra hagsmuna að gæta í landinu miðað við umfang starfseminnar áður. Af þeim þremur skipum sem hafa stundar veiðar í namibískri lögsögu undanfarið ár, Geysir, Heinaste og Saga, er aðeins eitt eftir í Namibíu og er þar um að ræða verksmiðjutogarann Heinaste.

„Það er mjög ánægjulegt að mál vegna skipsins Heinaste og skipstjóra þess var leitt til lykta fyrir dómi í Namibíu á miðvikudag. Þetta skapar ný tækifæri í rekstri skipsins og við viljum að þau verði nýtt í Namibíu,“ segir Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja.

Samherji vinnur nú að því að gera Heinaste út í Namibíu og er unnið að því að finna viðeigandi lausnir í samráði við namibísk stjórnvöld. Að minnsta kosti tímabundið verður þetta fólgið í leigu á Heinaste til namibískra aðila sem stunda útgerð í landinu. Samherji leggur ríka áherslu á að finna lausnir sem henta namibískum áhafnarmeðlimum skipsins, namibísku samfélagi og minnihlutaeigendum eignarhaldsfélags Heinaste.

Skipið Saga er sem stendur á leið í slipp vegna tímabærs viðhalds og lagfæringa sem höfðu staðið til lengi. Geysir er sem stendur við veiðar í Máritaníu þar sem ekkert af dótturfyrirtækjum Samherja fékk úthlutað kvóta fyrir skipið í Namibíu.

Áður en Samherjasamstæðan mun alfarið hætta starfsemi í Namibíu munu dótturfyrirtæki samstæðunnar í landinu uppfylla allar skyldur gagnvart skipverjum sem hafa unnið fyrir þessi fyrirtæki. Fulltrúar Samherja hafa fundað með þeim sjómönnum sem eiga í hlut og fulltrúum stéttarfélaga þeirra. Samherji mun leitast við að veita eins mörgum þeirra áframhaldandi vinnu og mögulegt er. Þá einkum þeim sem tengjast Heinaste.

„Eins og áður hefur komið fram munu fyrirtækin sem um ræðir standa við skuldbindingar sínar gagnvart öllum starfsmönnum í samræmi við gildandi lög og reglur,“ segir Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja.

Undanfarið ár hefur Samherji unnið fullnaðarsigur fyrir namibískum dómstólum í deilumálum gagnvart þarlendum samningsaðilum samstæðunnar. Undanfarna mánuði hafa sumir þessara aðila reynt að notfæra sér ásakanir á hendur Samherja í áróðursskyni til framdráttar sínum málstað. Í tengslum við slíka herferð hefur röngum upplýsingum verið dreift um eðli starfsemi Samherja í landinu. Samherjasamstæðan hyggst ekki leiða ágreining um slíkt til lykta á opinberum vettvangi og mun gæta hagsmuna sinna vegna samningsbundinna atriða eftir þar til bærum leiðum. Það er mat Samherja að samstæðan hafi staðið við, eða sé við það að standa við, allar skuldbindingar sínar í Namibíu.

Allar ákvarðanir, sem tengjast því að Samherji er að hætta rekstri í Namibíu, verða teknar í nánu samráði við þar til bær stjórnvöld. Greint verður opinberlega frá framvindu málsins jafnóðum.

Hér má sjá frekari fréttir um málefni Samherja í Namibíu:

Hér má sjá skoðanapistla um málefni Samherja í Namibíu: