Geysir Green Energy ásamt samstarfsaðilum félagsins í Norður Ameríku hafi selt hlutafé fyrir 21 milljarða króna í nýafstöðnu hlutafjárútboði kanadíska félagsins GTO Resources Inc.

Hlutaféð er selt í tengslum við sameiningu GTO við þrjú jarðhitafélög; Polaris Geothermal (GEO), Ram Power Incorporated (RPI) og Western Geopower (WGP). Tvö hin síðarnefndu eru að hluta í eigu Geysis.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar kemur fram að samruni félaganna fer þannig fram að kanadíska félagið GTO gerir hluthöfum félaganna, RPI, WGP og GEO tilboð um að skipta á hlutafé sínu og hlutafé í GTO. Stærstu hluthafar félaganna, þ.m.t. Geysir, hafa þegar samþykkt að skipta hlutafé sínu fyrir hlut í GTO.

Þá kemur fram að í tengslum við samrunann hefur nýtt hlutafé að upphæð 179 milljónir kanadadollara verið selt til nýrra fjárfesta.

Nú tekur við kynningartímabil þar sem samruninn er kynntur fyrir almennum hluthöfum félaganna.

Þann 3. nóvember greiðist hið nýja hlutafé til GTO sem á sama tíma mun taka upp nafnið í Ram Power Corporation. Hlutafé þess verður skráð í kauphöllinni í Toronto í Kanada. Hlutur Geysis í hinu sameinaða félagi verður um 6%.

Starfsemi Ram Power Incorporated, Western Geopower og Polaris Geothermal er á sviði jarðhitanýtingar til raforkuframleiðslu í Bandaríkjunum, Kanada og Níkaragva.

„Skráning hins sameinaða félags RPI, WGP og Polaris, í Kauphöllinni í Toronto, Kanada, undirstrikar aukið mikilvægi jarðhitaiðnaðarins vestanhafs,“ segir Ásgeir Margeirsson, forstjóri, Geysis Green Energy í tilkynningunni.

„Með því að stuðla að samruna RPI, WGP og Polaris og sölu á nýju hlutafé í sameinaða félaginu teljum við fjármögnun verkefna tengdum Geysi í Norður-Ameríku betur tryggða.“