Heilarvelta með viðskipti í Icelandair Group í dag námu alls 1711 milljónum króna. Þar munaði mest um viðskipti Íslandsbanka sem seldi 1% í félaginu á um það bil 760 milljónir króna.

Ekki voru viðlíka viðskipti með nein önnur félög. Næst mest viðskipti voru með bréf í VÍS, en þau námu 251 milljón. Bréf í VÍS hækkuðu um 1,31 prósent.

Þá námu viðskipti með bréf í Högum 127 milljónum króna.