Lífeyrissjóðurinn Gildi hefur keypt 20 milljónir hluta í Icelandair Group samkvæmt tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar í morgun. Miðað við gengi dagsins, 18,6, nemur kaupverðið 369 milljónum króna. Eignarhlutur fyrirtækisins fer úr 4,9% í 5,3%.

Lífeyrissjóðurinn hefur aðeins látið til sín taka á markaði í dag, en í morgun var greint frá því að hann hefði fest kaup á hlutum í VÍS fyrir 261 milljón króna.