Gildi lífeyrissjóður keypti í morgun 30 milljónir hluta í Vátryggingafélagi Íslands og nemur kaupverðið 261 milljón króna miðað við gengi dagsins. Þetta kemur fram í flöggun til Kauphallarinnar.

Eignarhlutur lífeyrssjóðsins fer úr 4,76% í 5,96% eftir viðskiptin.