Lífeyrissjóðurinn Gildi mun gera athugasemdir við og greiða atkvæði gegn tillögu stjórnar Arion banka um starfskjarastefnu sem lögð verður fram á aðalfundi félagsins næsta þriðjudag. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Gildis .

Í bókun frá Gildi sem lögð verður fram á fundinum segi m.a.: „Stjórn bankans hefur ekki með fullnægjandi hætti rökstutt þörfina og tilgang þess að nýta heimild til þess að koma á fót árangurstengdu launakerfi, aukningu kauprétta og áskriftarréttindum. Laun stjórnenda bankans virðast að mati sjóðsins, þegar tillit er tekið til möguleika á árangurstengdum greiðslum, kaupréttum og áskriftarréttindum, hærri en það sem gengur og gerist hjá öðrum íslenskum bönkum og skráðum fyrirtækjum sem starfa á íslenskum markaði."

Gildi muni á fundinum einnig greiða atkvæði gegn tillögu um þóknun til stjórnarmanna á þeim grundvelli að fjárhæðir sem þar eru lagðar til séu hærri en það sem gengur og gerist.

Einnig muni Gildi á fundinum greiða atkvæði gegn tillögu um nýjar starfsreglur tilnefningarnefndar á grundvelli fyrirkomulags við val á nefndarmönnum sem kalli að mati sjóðsins á meiri umræðu meðal hluthafa.