Lífeyrissjóðurinn Gildi hefur aukið við hlutafjáreign sína í fasteignafélaginu Reginn og á nú meira en 5% hlut í félaginu. Lífeyrissjóðurinn keypti sem svarar til 1% af hlutafé fasteignafélagsins síðastliðinn mánuð.

Fram kemur í flöggun frá lífeyrissjóðnum að Gildi lífeyrissjóður átti 4,66% hlut í fasteignafélaginu Reginn en fer nú með 5,02% hlut.

Ætla má að verðmæti eignahlutar Gildis í Regin nemi rétt rúmum 541,6 milljónum króna miðað við gengi hlutabréfa fasteignafélagsins. Gengi hlutabréfa Regins stendur nú í 8,31 krónu á hlut og er markaðsverðmæti fyrirtækisins rétt tæpir 10,8 milljarðar króna.