Gildi-lífeyrissjóður hefur verið valinn besti lífeyrissjóðurinn á Íslandi árið 2007 af tímaritinu Investment & Pensions Europe (IPE).  Er þetta þriðja árið í röð sem sjóðurinn hlýtur þessi verðlaun.  IPE er fagtímarit um lífeyrismál þar sem fjallað er um það helsta í lífeyrismálum á hverjum tíma í Evrópu.

Í fréttatilkynningu vegna verðlaunanna segir að árlega fari fram verðlaunaafhending þar sem blaðið verðlaunar lífeyrissjóði sem hafa skarað framúr í sínu heimalandi og í Evrópu. Að þessu sinni var belgíski lífeyrissjóðurinn Pensioenfonds KBC valinn besti lífeyrissjóðurinn í Evrópu. Verðlaunin voru afhent 15. nóvember sl. á árlegri verðlaunahátíð IPE sem að þessu sinni var haldin í Vín. Verðlaun þessi hafa verið afhent undanfarin sjö ár í Evrópu og er þetta í þriðja skiptið sem Ísland er með.

Í umsögn IPE kemur fram að Gildi hafi undanfarin ár, bæði í góðu og slæmu árferði á fjármálamörkuðum, sýnt framúrskarandi ávöxtun, mun betri en aðrir íslenskir lífeyrissjóðir.  Það hafi leitt til þess að sjóðurinn hækkaði réttindi sjóðfélaga um meira en 17% á tveimur árum, en enginn annar lífeyrissjóður á Íslandi hefur hækkað réttindi jafnmikið á sama tímabili.