Félag atvinnurekenda segir að gildistaka tollasamnings Íslands og Evrópusambandsins frá haustinu 2015 frestist að öllum líkindum til næstu áramóta. Segir félagið þetta eftir upplýsingum sem það hafi aflað hjá utanríkisráðuneytinu í frétt á vef FA.

Á sínum tíma var gert ráð fyrir að samningurinn gæti tekið gildi í byrjun þessa árs. Undanfarið hefur verið miðað við að hann tæki gildi á miðju ári en nú stefnir í að gildistakan verði ekki fyrr en öðru hvoru megin við áramót.

Samningurinn var undirritaður formlega í síðustu viku, en samkvæmt þeim upplýsingum sem FA hefur aflað sér eru tafir á fullgildingarferli hans hjá Evrópuþinginu.

Ýmsar matvörur lækka við gildistöku

Strax við gildistöku samningsins munu ýmsar matvörur lækka talsvert í verði þar sem tollar af þeim verða lækkaðir eða felldir niður. Þar má nefna pitsur, bökur, fyllt pasta, súkkulaði, bökunarvörur, villibráð, franskar kartöflur og útiræktað grænmeti.

Með samningnum voru jafnframt stækkaðir tollfrjálsir innflutningskvótar fyrir osta og kjötvörur. 210 tonna aukinn tollkvóti fyrir upprunaverndaða osta frá Evrópusambandinu, sem átti að taka gildi í áföngum, mun allur taka gildi strax við gildistöku tollasamningsins.

Ostkvóta úthlutað með hlutkesti ekki uppboði

Þessum ostakvóta verður úthlutað með hlutkesti, samkvæmt ákvörðun Alþingis, en ekki með uppboði eins og tíðkast hefur. Þessi breyting felur einnig í sér aukið úrval og lægra verð fyrir neytendur.

Sem dæmi um aukinn kvóta má nefna að innflutningskvóti nautakjöts mun aukast úr 100 tonnum í 696 tonn, svínakjöti úr 200 tonnum í 700 tonn, alifuglakjöt úr 200 tonnum í 856 tonn, heimilt verður að flytja inn 200 tonn af lífrænu alifuglakjöti, en nú er ekki tollkvóti fyrir það.

Síðan mun tollkvóti fyrir pylsur fara úr 50 tonnum í 250 tonn, unnar kjötvörur úr 50 í 400 tonn, innflutningsmagn á skinku mun tvöfaldast úr 50 í 100 tonn, ostar úr 80 tonn í 380 tonn og upprunavottaður ostur úr 20 tonnum í 230 tonn.

Uppboðskerfið hefur étið upp ávinning neytenda

„Það eru slæmar fréttir fyrir neytendur að gildistakan frestist, því að þessi samningur er mikið hagsmunamál þeirra,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.

„Fyrir innflytjendur er þetta líka bagalegt því að þeir voru byrjaðir að skipuleggja innkaup og birgðahald með hliðsjón af því að samningurinn tæki gildi um mitt ár.“

Ólafur segir að nú gefist hins vegar betra svigrúm til að undirbúa nýtt fyrirkomulag á úthlutun tollkvóta, sem landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra og fjármálaráðherra hafa lýst yfir að eigi að taka mið af hagsmunum neytenda.

„Það stendur til að leggja af útboð tollkvóta í núverandi mynd. Það kerfi er í fyrsta lagi ólögmætt og í öðru lagi hefur það leitt af sér gríðarlega hátt verð á kvótanum, sem í ýmsum tilvikum étur upp allan ávinning neytenda af tollfrelsinu.

Nú ætti að vera tryggt að það verði úr sögunni þegar tollasamningurinn kemur til framkvæmda. Fyrir vikið ætti verðlækkunin á innfluttu vörunni að verða enn meiri loksins þegar samningurinn tekur gildi.“