Procter & Gamble sem framleiðir Gillette rakvörurnar mun ekki endurnýja auglýsingasamning sinn við kylfinginn Tiger Woods þegar hann rennur út um áramótin.

Tiger Woods hefur undanfarið misst marga af helstu styrktaraðilum sínum eftir upp komst um framhjáhald hans með nokkrum konum.  Þar á meðal missti Woods samning við símafyrirtækið AT&T sem metinn var á 35 milljónir dala.

Forsvarsmenn Gillette vildu ekki gefa upp virði samnings þeirra við Woods.