Ægir Már Þórisson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra ráðgjafarsviðs af Ingva Þór Elliðasyni, sem hefur sinnt því starfi samhliða starfi sínu sem forstjóri Capacent á Íslandi.

Ægir er BA í sálfræði frá Háskóla Íslands og Cand.Psych í vinnusálfræði frá sama skóla. Hann hefur starfað hjá Capacent frá 2001, fyrst sem ráðgjafi og sem mannauðsstjóri frá árinu 2005. Ægir er giftur Belindu Davíðsdóttur Chenery og eiga þau þrjú börn.