„Valið kom mér svo sannarlega á óvart,“ segir Gísli Guðmundsson, kerfisstjóri hjá Advania, og einn af helstu Microsoft sérfræðingum landsins. Hann fékk á dögunum hina eftirsóttu vottun „Microsoft Most Valuable Professional“ (MVP) sem Microsoft veitir árlega fáum útvöldum meðlimum notendum hugbúnaðar frá Microsoft. Gísli er fyrstur Íslendinga til að fá vottun sem þessa en á Norðurlöndunum eru aðeins 18 aðrir með MVP vottun. Hann fær gráðuna m.a. á grundvelli sérþekkingar sinnar á svokölluðum Application Virtulization lausnum Microsoft.

Fram kemur í tilkynningu frá Advania að það þyki mikill heiður að fá MVP vottun. Af þeim rúmlega 100 milljónum manna sem taka þátt í notendasamfélögum Microsoft lausna fá aðeins um 4.000  MVP vottun árlega. Þeir sem fá vottunina þykja skara fram úr í tækniþekkingu, bera af í leiðtogahlutverki í notendahópum og aðstoð við aðra Microsoft notendur. Það eru ýmist starfsmenn Microsoft, aðilar með MVP vottun eða meðlimir notendasamfélaga sem tilnefna menn til MVP vottunar en endanlegt val er í höndum Microsoft. Þeir sem fá MVP vottun koma frá  90 löndum, tala 40 tungumál og teljast hafa sérþekkingu á tæplega 90 Microsoft lausnum. Samanlagt svara þeir meira en 10 milljón fyrirspurnum meðlima Microsoft notendahópa á hverju ári.

Mikill heiður

Í tilkynningunni er haft eftir Gísla:

„Það er mikill heiður að fá MVP vottun og valið kom mér svo sannarlega á óvart. Undanfarin ár hef ég gefið notendum ráð og leiðbeiningar með bloggi og vídeó leiðbeiningum. Ég hef fengið góð viðbrögð þeirra notenda sem fylgjast með því sem ég er að gera. Ég hlakka einnig mikið til að fara á MVP Global Summit ráðstefnuna. Þetta hvetur mann til að afla sér meiri þekkingar og vonandi ná vottun aftur að ári og jafnvel fá vottanir í fleiri Microsoft greinum. Mér finnst þetta svipað eins og Ísland hafi unnið gull í ólympíuleikjum tölvunörda!“ segir Gísli Guðmundsson kerfisstjóri hjá Advania.

Jafnframt er haft eftir Halldóri Jörgenssyni, framkvæmdastjóra Microsoft á Íslandi:

„Við hjá Microsoft óskum Gísla innilega til hamingju með þennan árangur. Það hefur ávallt verið takmark okkar að Íslendingur hlyti þessa vottun því hún er ekki bara verðmæt fyrir Gísla heldur einnig allt tæknisamfélagið á Íslandi sem hefur notið góðs af framlagi hans á síðustu misserum.  Nú hefur þessu takmarki verið náð sem eykur athygli erlendra aðila á hæfni íslensks tæknisamfélags, og leggur grunninn að nýjum tækifærum.“