Gísli Tryggvi Gíslason hefur verið ráðinn forstöðumaður stafrænnar tækni hjá Samkaupum. Áður gegndi Gísli tímabundið stöðu markaðsstjóra Samkaupa sem hann tók við árið 2019 en einnig hefur hann gengt stöðu verkefnastjóra netverslunar Nettó í rúm þrjú ár. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Gísli hefur unnið hjá Samkaupum nánast alla sína starfsævi en hann hóf fyrst störf hjá Samkaupum árið 2002, þá sem uppvaskari í verslun Samkaup Úrvals á Akureyri. Síðan þá hefur Gísli gengt ýmsum störfum innan keðjunnar um allt land. Samhliða vinnu menntaði Gísli sig við Háskólann í Bifröst og lauk B.S. gráðu í viðskiptafræði.

Gísli er fæddur í Reykjavík en flutti ungur norður á Akureyri. Hann er giftur Söndru Kristinsdóttur, hjúkrunarfræðingi á Landspítalanum, og eiga þau saman tvö börn.

„Mér líður svo sannarlega vel innan Samkaupa og er starfsævi mín sönnun þess. Mér var tekið með opnum örmum strax frá fyrsta degi og var hvattur áfram. Ég er mjög spenntur að taka við þessu nýja starfi og leggja mitt af mörkum. Stafræn tækni innan Samkaupa og í samfélaginu í kringum okkur á eftir að fara vaxandi á næstu árum og það er gaman að fá að vera í framlínunni í þeirri þróun. Íslendingar eru orðnir meðvitaðri um netverslun. Við erum búin að sjá mikinn vöxt undanfarin ár og eigum von á enn frekari vexti á næstu árum," er haft eftir Gísla í tilkynningunni.

Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa, segir það hálf lygilegt hversu lengi Gísli hafi unnið hjá Samkaupum og náð að vinna sig hratt upp á sama tíma. „Ég á ekki von á öðru en að hann blómstri í þessari stöðu eins og hann hefur gert innan veggja fyrirtækisins síðustu 18 árin," segir Gunnar Egill.