Heildarfjöldi greiddra gistinátta í október síðastliðnum dróst saman um 91% samanborið við október 2019. Gistinætur erlendra ferðamanna voru um 69 þúsund í október 2020 en 779 þúsund árið áður, að því er Hagstofan greinir frá.

Gistinóttum á hótelum fækkaði um 91%, um 86% á gistiheimilum og um 88% á öðrum tegundum skráðra gististaða (til að mynda farfuglaheimilum og orlofshúsum). Um 65% gistinátta voru skráðar á Íslendinga, eða um 45.000, en um 35% á erlenda gesti eða um 24.000 nætur. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru um 52.000, þar af 38.800 á hótelum.

  • Framboð hótelherbergja í október dróst saman um þriðjung milli ára. Herbergjanýtingin nam 10,9% og dróst saman um 58 prósentustig milli ára.

Gistinóttum fækkað mest á höfuðborgarsvæðinu eða um 94%, úr 225 þúsund í um 14 þúsund. „Á sama tíma dróst framboð hótelherbergja á höfuðborgarsvæðinu saman um 43% á milli ára um leið og herbergjanýting féll um 67 prósentustig á milli ára og var 10,2% í október síðastliðnum.“