Gistinætur á hótelum í desember síðastliðnum voru 54.200 en voru 53.600 í sama mánuði árið 2006. Gistinóttum hefur því fjölgað um rúmlega 1% á milli ára og er fjölgunin mest á Suðurlandi, Norðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu. Í frétt á vef Hagstofu Íslands segir að hlutfallslega hafi gistinóttum fjölgað mest á Norðurlandi, úr 1.800 í 2.200 eða um tæp 24%. Gistinóttum á Suðurlandi fjölgaði í desember um tæp 20% á milli ára, úr 2.700 í 3.200. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum í desember um rúmt 1% frá fyrra ári, úr 43.300 í 43.700. Á Austurlandi fækkaði gistinóttum í desember hinsvegar um tæp 54% á milli ára, eða úr 1.300 í 600. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða voru 4500 gistinætur í desember 2007 sem er sami fjöldi og árið áður.

Fjölgun gistinátta á hótelum í desember má rekja til Íslendinga, gistinóttum Íslendingar fjölgar um 21%  en gistinóttum útlendinga fækkar um 8% á milli ára.

Á árinu 2007 fjölgaði gistinóttum á hótelum um 11% frá fyrra ári, en fjöldi gistinátta fór úr 1.165.953 í 1.309.589 milli ára. Fjölgun varð á öllum landsvæðum.

Hlutfallslega varð aukningin mest á Suðurlandi þar sem gistinóttum fjölgaði um 32%. Á samanlögðu svæði  Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða nam aukningin 11%, höfuðborgarsvæðinu 9%, Austurlandi 5% og á Norðurlandi 2%. Fjölgun gistinátta á þessu tímabili má aðallega rekja til Íslendinga 19% og 11% til útlendinga.