Gistinætur á hótelum voru 6% fleiri í nóvember í fyrra en í sama mánuði 2003. Mest aukning varð á Suðurlandi (32%) en á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um rúmlega 1.500 eða 3,9%. Kemur þetta fram í tölum sem Hagstofan birti í morgun. Framboð hótetelrýmis hefur aukist nokkuð undanfarið og er enn frekari aukining í farvatningu. Fjöldi hótela sem opin eru allt árið um kring voru 70 í nóvember síðastliðinum en 66 á sama tíma árið á undan. Unnið er að byggingu nýrra hótela á höfuðborgarsvæðinu og mun því bætast enn frekar við hótelrýmið á árinu.

Herbergjanýting var nokkuð betri í nóvember 2004 en 2003 eða 45,7% á móti 43,8%.

Eitt félag í Kauphöll Íslands, Flugleiðir, stundar hótelrekstur og kom fram við kynningu á uppgjöri félagsins á þriðja ársfjórðungi að nýting hótelherberja hefði verið heldur undir væntingum, sem rekja má til mikillar aukningar á hótel- og gistirými. eins og bent er á í Morgunkorni ÍSlandsbanka.