Gistinætur á hótelum í nóvember árið 2005 voru 57.400 en voru 53.000 í sama mánuði árið 2004 sem jafngildir 8,2% aukningu. Í frétt Hagstofunnar kemur fram að gistinóttum fjölgaði á öllum landsvæðum í nóvembermánuði, en hlutfallslega var hún mest á Suðurlandi þar sem gistinætur fóru úr 4.200 í 5.900 milli ára sem jafngildir 42% fjölgun.

Á Austurlandi nam aukningin 18%, en gistináttafjöldinn fór úr 1.200 í 1.400. Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum fóru gistinæturnar úr 4.300 í 5.000 sem er aukning um 16%. Gistinætur á hótelum á Norðurlandi voru 2.650 í nóvember síðastliðnum en voru 2.600 árið 2004, sem er 2% aukning. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um rúmlega 1.600, en þær fóru úr 40.800 í 42.400 milli ára (4% aukning).