Gistinætur á hótelum í ágúst síðastliðnum voru 189.300 en voru 186.100 í sama mánuði árið 2007. Gistinóttum fjölgaði því um tæp 2% milli ára.
Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.
Þar kemur fram að fjölgun átti sér stað í öllum landshlutum nema á Höfuðborgarsvæðinu og á Norðurlandi en þar eru gistinætur svipaðar milli ára.
Hlutfallslega fjölgaði gistinóttum mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða um tæp 12%, þar fóru gistinætur úr 17.000 í 19.000.
Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 6%, eða úr 10.700 í 11.400. Gistinóttum fjölgaði einnig á Suðurlandi um 2%, úr 27.300 í 27.800 milli ára.
Á Höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum úr 110.700 í 110.900 og á Norðurlandi voru gistinætur 20.400 miðað við 20.300 í ágúst 2007.
Gistinóttum á hótelum fyrstu átta mánuði ársins fjölgaði um rúm 2% milli ára
Þá kemur jafnframt fram að gistinætur á hótelum fyrstu átta mánuði ársins voru 975.500 en voru 951.700 á sama tímabili árið 2007.
Fjölgun varð á Suðurlandi um 10% og á höfuðborgarsvæðinu um rúm 1% milli ára. Gistinætur stóðu í stað eða fjölgaði á öðrum landsvæðum.
Gistinóttum íslendinga hefur fjölgað um tæp 8% fyrstu átta mánuði ársins miðað við sama tímabil árið 2007. Gistinóttum útlendinga fjölgar um rúmt 1% milli ára