Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru 89.900 en voru 80.100 í sama mánuði árið 2006, sem er fjölgun um 9.800 nætur eða rúm 12% að því er kemur fram í tölum Hagstofunnar. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum. Aukningin var hlutfallslega mest á Norðurlandi þar sem gistinóttum fjölgaði um rúmlega helming, fóru úr 4.600 í 6.900 milli ára (51% aukning).

Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um rúm 43%, úr 2.100 í 3.100. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fór gistináttafjöldinn úr 6.100 í 7.400 milli ára, sem er 20% aukning. Gistinæturnar á höfuðborgarsvæðinu í apríl síðastliðnum voru 63.100 en voru 58.200 í sama mánuði árið 2006 sem er aukning um rúm 8%. Á Suðurlandi nam aukning gistinátta rúmum 5% en þær fóru úr 9.000 í 9.500 milli ára.

Fjölgun gistinátta á hótelum í apríl má bæði rekja til útlendinga (13%) og Íslendinga (11%).
Gistirými á hótelum í aprílmánuði jókst milli ára. Fjöldi herbergja fór úr 3.710 í 4.125, 11% aukning og fjöldi rúma úr 7.501 í 8.348, 11% aukning. Hótel sem opin voru í apríl síðastliðnum voru 73 en 74 í sama mánuði árið 2006.

Gistinætur á hótelum í janúar, febrúar, mars og apríl samanlögðum voru 293.200 en voru 250.000 fyrir sama tímabil árið 2006. Fjölgun varð á öllum landsvæðum. Mest var hún þó á Austurlandi þar sem gistináttafjöldinn jókst um tæp 73%, úr 5.500 í 9.500. Aukningin nam 24% á Norðurlandi, 17% á höfuðborgarsvæðinu, 15% á Suðurlandi og 6% á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum, en þessar tölur eru birtar í einu lagi vegna þess hve gististaðir eru fáir.

Fjölgun gistinátta fyrstu þrjá mánuði ársins skiptist þannig að gistinóttum útlendinga fjölgaði um 22% og Íslendinga um 8%.