Gistinætur á hótelum í febrúar voru 55.010 en voru 53.650 árið 2004 sem jafngildir 2,5% aukning. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum hlutfallslega mest, en þær fóru úr 2.520 í febrúar 2004 í 3.230 í febrúar 2005, sem er um 28% aukning. Á Suðurlandi var aukning um tæp 15% í febrúar, fjölgaði úr 4.880 í 5.610. Á höfuðborgarsvæðinu nam fjölgun gistinátta rúmum 3%, þær fóru úr 40.580 í 41.930. Á Austurlandi fækkaði gistinóttum í febrúar úr 2.170 í 960 (-56%).

Á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum var samdráttur um rúm 6%, gistinætur voru 3.290 í febrúar síðastliðnum en voru 3.510 árið 2004. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar.

Fjölgun gistinátta á hótelum í febrúar 2005 er vegna Íslendinga (15,5%), en gistinóttum útlendinga fækkaði um 2,4%.

Frá og með janúar 2005 hafa gististaðir skilað Hagstofunni inn nánari sundurliðun á þjóðerni gesta. Við bættust flokkarnir Mið- og Suður-Ameríka, Kína, Önnur Asíulönd, Afríka og Eyjaálfa. Flokkurinn Öll önnur lönd dettur út en þegar ríkisfang gesta er ekki vitað falla þeir í flokkinn Þjóðerni óþekkt. Með þessu er hægt að flokka gesti eftir löndum/heimsálfum og verður flokkunin nákvæmari og niðurstöður að sama skapi ítarlegri.