Gistinætur á hótelum í febrúar síðastliðnum jukust um 5,5% frá sama mánuði fyrir ári. Síðastliðinn febrúar voru gistinæturnar 56.000 en voru 53.000 á sama tíma í fyrra, að því fram kemur í tilkynningu frá Hagstofunni.

Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem gistinætur fóru úr 3.300 í 5.600 milli ára og er það 68% aukning.

Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 21%, þær voru 1.200 í febrúar ár en 1.000 á sama tíma í fyrra.

Á höfuðborgarsvæðinu nam aukningin 1,5%, en gistináttafjöldinn fór úr 41.200 í 41.800. Aukningin á Suðurlandi var sú sama, en þar fóru gistinæturnar úr 4.500 í 4.600 milli ára.

Norðurland var eina landsvæðið þar sem samdráttur átti sér stað, en gistinóttum fækkaði þar um 6,4%, úr 3.100 í 2.900.

Fjölgun gistinátta á hótelum í febrúar árið 2006 var bæði vegna Íslendinga og útlendinga.

Fyrstu tvo mánuði ársins nemur fjölgun gistinátta frá fyrra ári 8,5%, en gistináttafjöldinn fór úr 89.000 í 97.000 milli ára. Fjölgun gistinátta átti sér stað á öllum landsvæðum nema Suðurlandi.

Athygli skal vakin á því að hér er átt við gistinætur á sem eru opin allt árið um kring. Í þessum flokki gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Tölur fyrir árin 2005 og 2006 eru bráðabirgðatölur.